Haítí
Haítí fékk sjálfstæði frá Frakklandi árið 1804. Í dag eru flutt fíkniefni í gegnum landið til Bandaríkjanna, þar eru ýmsir ofbeldishópar og mikil spilling.
Síðast uppfært 14.07.2008Eftir uppreisnina árið 1804, varð Haítí víti til varnaðar fyrir hvítu yfirstéttina í Suður-Ameríku. Á tólf ára tímabili var mikið um átök og afkomendum þræla tókst að losa sig við eða drepa meirihluta hvítra og múlatta og tóku sjálfir völdin.
Dr. Francois Duvalier sem fékk gælunafnið „Papa Doc“ var kosinn forseti landsins árið 1957 en tilnefndi sjálfan sig sem forseta fyrir lífstíð árið 1964 og stjórnaði með harðri hendi á Haítí fram til ársins 1971. Stjórnarandstaðan undir forystu hinna svokölluðu „Tonton Macoutes“, var einkaher Francois Duvaliers. Þessi herskái hópur stóð fyrir alvarlegum mannréttindabrotum og margir haítískir stjórnarandstöðumenn flúðu land. Þegar „Papa Doc“ dó árið 1971, tók sonur hans Jean-Claude „Baby-Doc“ Duvalier við völdum. Hann erfði einkaher föður síns og útnefndi sjálfan sig, líkt og faðir hans, forseta til lífstíðar. Eftir víðtæk uppþot missti Baby-Doc völdin í landinu árið 1986 og var sendur í útlegð til Frakklands. Með því lauk þrjátíu ára valdatíð Duvaliers á Haítí. Það markaði þó ekki endalok „Tonton Macoutes“, sem héldu áfram að drepa óbreytta borgara og vernda réttindi Duvalier-yfirstéttarinnar – þeir eru enn að í dag.
Eftir að Duvalier var steypt af stóli, tók herforingjastjórn studd af Bandaríkjunum við völdum þar til að fyrstu lýðræðislegu kosningarnar voru haldnar í landinu árið 1987. Fyrrum presturinn Fr. Jean-Bertrand Aristide sem var fæddur og uppalinn í einu versta fátækrahverfi landsins sigraði í kosningunum. Hann fékk 67 prósent atkvæða og var vinsæll því hann hét því að berjast fyrir málstað fátækra íbúa Haítí. Honum var þó steypt af stóli í valdaráni undir stjórn leiðtoga hersins Raoul Cédras árið 1991. Aristide var sendur í útlegð og Cédras sendi inn herskáa hópa til að vinna gegn stjórnarandstöðunni. Stuðningsmenn Aristides voru drepnir. Eftir að ljóst var að mikill diplómatískur þrýstingur skilaði ekki árangri, tóku SÞ ákvörðun um að senda lið inn í landið til að koma lýðræðislega kjörna forsetanum Aristide aftur til valda árið 1994. Herliðið mætti lítill mótspyrnu og Aristide gat snúið aftur heim sigri hrósandi.
Næstu ár þar á eftir fóru þó vinsældir Aristides hríðfallandi, þrátt fyrir að hann hefði náð endurkjöri sem forseti árið 2000, í kosningum sem voru gagnrýndar fyrir svindl og fyrir að hagræða atkvæðaseðlum. Aristide var sakaður um spillingu og að útrýma andstæðingum sínum. Það var ekki fyrr en árið 2003 að upp komu alvarlegir árekstrar á milli stuðningsmanna Aristide og andstæðinga hans. Óeirðirnar komu í kjölfarið á morðinu á uppreisnarforingjanum Amiot Metayer sem áður hafði stutt Aristide, en hafði með tímanum orðið einn af aðalgagnrýnendum hans. Aristide var sakaður um að hafa staðið fyrir morðinu. Í tengslum við 200 ára sjálfstæðisafmæli Haítís árið 2004 brutust út ofbeldisfullir götubardagar og Aristide aflýsti forsetakosningunum sem halda átti sama ár. Ákvörðunin leiddi til þess að hluti af stjórnarandstöðunni skipulagði mikil mótmæli, á meðan aðrir gripu til vopna og ýmsir glæpahópar nýttu sér ástandið til að láta gamminn geisa. Í átökin blönduðust stuðningsmenn Duvalier-fjölskyldunnar og „Tonton Macoutes“ og landið var í upplausn.
Uppreisnarhóparnir tóku völd yfir norðurhluta Haítí og hótuðu að taka yfir höfuðborgina Port-au-Prince ef Aristide segði ekki af sér sem forseti landsins. Á sama tíma var þrýstingur, einkum frá Bandaríkjunum, um að Aristide segði af sér sem hann gerði í febrúar 2004. Bandaríkjamenn sáu síðan til þess að hann yrði fluttur úr landi. SÞ fóru þar á eftir inn í landið með friðargæsluliðið MUNUSTAH, undir forystu Bandaríkjamanna, með það hlutverk að afvopna uppreisnarmennina og koma á lögum og reglu í landinu. Ári seinna samþykkti öryggisráð SÞ ályktun þess efnis að auka skyldi við herliðið og telur friðargæsluliðið á Haítí nú um 8000 manns.
Kona á leið á kjörstað í fátækrahverfi í Bel Air. SÞ-hermaður stendur vaktina. Mynd: UN Photo/Sophia Paris
Það gengur þó erfiðlega að ná Haítí á réttan kjöl aftur. Mikil pólitísk og efnahagsleg ringulreið er í landinu og íbúar landsins lifa við hrikalegar aðstæður. Fíkniefni eru flutt til Bandaríkjanna í gegnum Haítí sem skapar vandamál fyrir landið. Eiturlyfjabarónarnir eru valdamiklir og er Haítí eitt af spilltustu löndum heims. Árið 2004 skall hitabeltisstormurinn Jeanne á Haítí sem gerði ástandið enn verra. Til viðbótar við allt þetta berjast óbreyttir borgarar fyrir lífi sínu á hverjum degi í átökum á milli fylgjenda Aristide og andstæðinga hans. Aristide hvetur fylgjendur sína til að beita „friðsamlegum mótmælum“ gegn því sem hann kallar bandarískt hernám. Uppreisnarseggirnir hafa komið saman í hóp sem þeir kalla „Operation Bagdad“ og veita mótspyrnu í anda Íraka, meðal annars með því að hálshöggva stjórnmálaandstæðinga. Í ringulreiðinni á Haítí eru allir að reyna að komast lífs af og það er erfitt að greina ofbeldi sem verður til vegna stjórnmála- eða efnahagslegra aðstæðna í sundur. Kosningar fóru samt sem áður fram í febrúar 2006, eftir að hafa verið fluttar nokkrum sinnum um set af öryggisástæðum. Preval, sem er fyrrum bandamaður Aristide og var forseti landsins frá 1996 til 2001 bar sigur úr býtum. SÞ hófu árið 2006 afvopnunaráætlun sem stendur enn yfir.
———
Hlutverk SÞ í átökunum
Friðargæslusveitir SÞ vinna að því að afvopna ólíka uppreisnarhópa í landinu og að tryggja öryggi borgaranna, meðal annars með því að koma á vel starfandi löggæslu. Verkefnið hefur reynst krefjandi og herliðið hefur oft fengið framlengingu á umboði sínu. Herliðið hefur einnig það hlutverk að styrkja stjórnmálakerfi landsins og gengdi mikilvægu hlutverki við kosningarnar. Að auki ber þeim að sjá til þess að mannréttindi séu virt.
Fleiri SÞ stofnanir eru í landinu. Til að mynda UNICEF sem vinnur meðal annars að því að bæta skólagöngu barna. UNHCR aðstoðar haítíska flóttamenn, einkum í nágrannalandinu Dóminíkanska lýðveldinu og Matvælaáætlun SÞ aðstoðar fátæka íbúa sem þjást af matarskorti.
———
Heimildir: Uppsala Conflict database, Institutt for fredsforskning (PRIO), Aschehoug og Gyldendals store leksikon, BBC, Involve yourself, Dagsavisen, regjeringen.no

