Tölfræði Lönd Átök Gervihnattamyndir Samningar Þemu Myndbönd Um Globalis
Aðalsíða > Átök > Srí Lanka

Srí Lanka

Á Srí Lanka berjast Tamíltígrar fyrir sjálfstæðu ríki til handa Tamílum í landinu, það hafa þeir gert í meira en 20 ár. Í dag er sambandið á milli uppreisnarmanna og stjórnvalda verra en það hefur áður verið og hafa verið gerðar margar tilraunir til að koma á sáttaumleitunum á ný.

Síðast uppfært 06.02.2009

Tveir stærstu þjóðflokkarnir á Srí Lanka eru Singalesar og Tamílar. Singalesar eru um það bil 75% íbúa landsins en Tamílar um það bil 18%. Flestir Tamílar komu til Srí Lanka frá Suður-Indlandi til að vinna þegar landið hóf að framleiða te í lok nítjándu aldar. Bretar sem ráku plantekrurnar þurftu nauðsynlega á vinnuafli að halda og lofuðu Tamílum gulli og grænum skógum fyrir að koma og vinna á plantekrunum. Þeir stóðu þó ekki við loforð sín.

Kirkegård på Sri Lanka

Grafreitir fallinna Tamíltígra í, í norðurhluta Srí Lanka. Mynd: Ellen Hofsvang

Löng hefð er á Srí Lanka fyrir að mismuna Tamíl-minnihluta landsins. Árið 1956 var singalesíska gerð að eina opinbera tungumáli landsins og árið 1970 var ákveðið að Tamílar fengju aðeins aðgang að ákveðnum kvóta af framhaldsmenntun. Óánægjan jókst meðal tamílskra íbúa sem leiddi til þess að ákveðnir hópar ákváðu að grípa til vopna í baráttunni fyrir réttindum sínum. Hópurinn sem fljótt hafði sig mest í frammi voru Tamíltígrarnir. Þeir voru stofnaðir í lok áttunda áratugarins og börðust fyrir sjálfstæðu tamílsku ríki í norður- og austurhluta Srí Lanka.

Árið 1983 var fulltrúum á þingi gert að sverja eið þess efnis að þeir myndu vinna að einhug og samstöðu í Srí Lanka. Seinni hluti eiðsins gerði það að verkum að tamílskir fulltrúar fóru af þingi og síðan þá hafa ekki verið fulltrúar frá Tamílum á þingi Srí Lanka. Árið 1983 varð einnig fyrsti alvarlegi áreksturinn á milli Tamíltígranna og singalesíska hersins, þegar Tamíltígrar gerðu árás. Í kjölfar árásanna fóru af stað öflugar hefndaraðgerðir sem beindust að óbreyttum tamílskum borgurum, þar sem á milli 500 og 2000 Tamílar voru drepnir. Stuðningur tamílskra íbúa við Tamíltígra jókst eftir þessar aðgerðir, sérstaklega eftir að singalesíski herinn sat aðgerðalaus hjá og samþykkti því aðgerðirnar. Þetta var upphafið að 20 ára löngu borgarastríði þar sem um það bil 65.000 manns hafa látið lífið og um 1,8 milljón manns flúið heimili sín.

Stríðið hefur alla tíð aðallega verið á milli Tamíltígra annars vegar og stjórnvalda á Srí Lanka hins vegar. Þrátt fyrir að aðrir andspyrnuhópar hafi blandast í átökin, hafa tígrarnir verið ráðandi. Indland hefur gegnt mikilvægu, en þó óvissu hlutverki í átökunum á Srí Lanka, landið hefur stutt stjórnvöld á Srí Lanka og Tamíltígra til skiptis. Tamílar eru hindúar og vegna mismununar singalesa gagnvart Tamílum njóta Tamílar stuðnings Indverja (óbreyttra borgara). Á sama tíma hafa indversk stjórnvöld verið búin undir það að uppeisn Tamíla geti breitt úr sér til indverskra Tamíla. Á níunda áratugnum fengu Tamíltígrar umfangsmikla efnahags- og hernaðarlega aðstoð frá indverska héraðinu Tamil Nadu. Það var þó stöðvað árið 1991 af indverskum stjórnvöldum. Indversk stjórnvöld fóru samt sem áður með friðargæslulið inn á tamílsku svæðin árið 1987. Það var gert í tengslum við friðarsamkomulag, þar sem Tamílum var lofað að þeir fengju ákveðna sjálfsstjórn á norðursvæðunum gegn því að þeir myndu afvopnast. Vandamálið var að Tamíltígrar undirrituðu aldrei samkomulagið, heldur einungis minni uppreisnarhópar. Þegar Indverjar komu með friðargæsluliðið, braust út stríð á milli indverskra hersveita og Tamíltígra. Þrátt fyrir að Indland hafi haft fleiri hermenn, voru Tamíltígrar góðir í skæruhernaði, sem leiddi til mikils ósigurs.

Sem liður í nýju friðarferli voru indverskir hermenn kallaðir burt árið 1989. Tamíltígrar létu kné fylgja kvðiði. Ýmsar tilraunir til samningaviðræðna og til að koma til móts við óskir allra leiddu til þess að árið 2002 var komið á vopnahléi sem hélt opinberlega til ársins 2008, en sannleikurinn er sá að vopnahléið var brotið yfir 3000 sinnum, í yfir 90% tilvika af Tamíltígrum. Ástandið er í sjálfheldu og friðarferlinu miðar ekkert.

Frá því að hafa verið með samstarfSÞýða ríkisstjórn á Sri Lanka á tíunda áratugnum, er hægrisinnuð ríkisstjórn landsins nú hörð í horn að taka og vill „stríð fyrir frið“. Hún varð enn afdráttarlausari í afstöðu sinni eftir að utanríkisráðherrra Srí Lanka var myrtur í ágúst 2005. Tamíltígrum var kennt um morðið, en þeir neituðu sök. Tsunami flóðbylgjan um jólin 2004 skall hart á Srí Lanka og eyðileggingin var einnig mikil á Tamílsvæðunum. Margir vonuðust eftir að samstarfið í björgunarstarfinu kæmi af stað vilja til að hefja viðræður að nýju, en því miður reyndist svo ekki.

Í janúar 2008 braut ríkisstjórn Sri Lanka formlega vopnahléið gegn Tamíltígrum. Mikil hætta er á að borgarastríð geti brotist út í landinu að nýju.

———

Hlutverk SÞ í átökunum

SÞ hafa ekki sent friðargæslulið til Srí Lanka, en margar SÞ-stofnanir hafa unnið í tengslum við átökin. Meðal annars UNHCR, Flóttamannahjálp SÞ, sem hefur aðstoðað þá sem hafa flúið frá svæðum Tamíla til Suður-Indlands.

———

Heimildir: Uppsala conflict database,Institutt for fredsforkning (PRIO), Félag Sameinuðu þjóðanna, Aschehoug og Gyldendals store norske leksikon, Wikipedia, BBC, Ny Tid



Srí Lanka
Srí Lanka
Lönd sem eiga aðild að átökunum
Lesa meira um átökin í Uppsala Conflict Database (enska)
Login