Fjölþjóðafyrirtæki
Tölurnar sýna fjölda útibúa fjölþjóðafyrirtækja í ákveðnu landi. Fyrirtæki telst hér sem útibú erlends fyrirtækis ef erlendir aðilar eiga meira en 10 prósent í fyrirtækinu og koma auk þess að stjórn fyrirtækisins.
Fjölþjóðafyrirtæki er fyrirtæki með framleiðslu eða þjónustu í minnst tveimur löndum. Stór fjölþjóðafyrirtæki geta haft mikil áhrif á alþjóðasamskipti og efnahag í einstökkum löndum. Fjöldi landa keppist um að laða til sín fjölþjóðafyrirtæki, meðal annars með skattaafslætti, bættum samgöngum og ráðgjöf og aðstoð frá hinu opinbera. Í sumum tilfellum er einnig dregið úr kröfum um umhverfisvernd og aðstæður á vinnustað til að gera landið að aðlaðandi kosti til að stofna útibú.
Eining: Fjöldi
Þema: Efnahagur
Heimild: Earth Trends

