[[suggestion]]
Perú
 

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg

Líma

Þjódernishópar

Amerindíánar 45%, mestizo 37%, hvítir 15%, aðrir 3%

Tungumál

Spænska, quechua, aymara, önnur minni amasón tungumál

Trúarbrögð

Kaþólikkar 81%, sjöundadags aðventistar 2%, aðrir/óskilgreint/ekkert 17% (2003)

Sjtórnarform

Lýðveldi

Verg landsframleiðsla á hvern íbúa

13 749 PPP$

Aðrir áfangastaðir

Landafræði

Andesfjöllin skipta Perú í þrjú ólík svæði. Á þurri strandlengju vestan fjallanna er lítil rigning og lítill munur á milli árstíða. Á hálendinu er kaldara en í öðrum hlutum landsins, raki og mikil úrkoma. Í austanverðu landinu eru Andesfjöllin, þar er hitabeltisloftslag með háum hita og miklu regni á regntímabilinu. Loftslag í Perú verður að nokkru leyti fyrir áhrifum frá hinum kalda Humboldt-straumi, hann gerir landið sérlega berskjaldað fyrir veðurfyrirbærinu El Nino sem stjórnar breytingum á hitastigi sjávar. Þessar breytingar hafa afleiðingar í för með sér bæði fyrir fiskveiði og loftslag. Í landinu er mikið af náttúruauðlindum. Mikil loft- og vatnsmengun vegna ört vaxtandi iðnaðar á eftirstríðsárunum hefur leitt til mikilla umhverfisvandamála. Eyðing regnskógarins er einnig viðvarandi vandamál.

Saga

Í kringum 3000–1800 f.Kr. kom Nore Chico-siðmenningin fram við ströndina þar sem í dag er Perú. Þetta var eitt af fyrstu skipulögðu samfélögum latnesku-Ameríku að því er vitað er. Á sama tíma var lagður grunnur að mjög þróuðum bæjum í Andesfjöllum og á níundu öld hófu Mochica-indíánar að byggja húsaraðir og vatnskerfi í fjöllunum sem enn eru í notkun. Á tólftu öld kom Inkaríkið fram í kringum bæinn Cuzco og næstu 300 ár þar á eftir lögðu Inkar undir sig næstum þriðjung af Suður-Ameríku. Árið 1532 hertóku Spánverjar Cuzco og lögðu í kjölfarið undir sig allt ríkið á stuttum tíma. Næstu aldir voru byggðar námur og plantekrur á svæðinu og var stærstur hluti vinnuaflsins innfæddir þrælar. Eftir nokkur uppþot gegn nýlendustjórninni varð landið sjálfstætt árið 1821, eitt af síðustu löndum Suður-Ameríku til að hljóta sjálfstæði. Á 19. öld átti Perú í röð landamæradeilna og stóran hluta tuttugustu aldar var kúgunarstjórn við völd í landinu, áður en lýðræði var komið á árið 1980.

Vistfræðileg fótspor

1 3

1,4

Hvis alle mennesker på Jorden skulle ha samme forbruk som en gjennomsnittlig innbygger i Perú ville vi trenge 1,4 jordkloder.

Samfélag og stjórnmál

Perú er lýðveldi, forsetinn útnefnir forsætisráðherrann og ríkisstjórnina. Bæði forsetinn og þingið eru kjörin til fimm ára í senn. Á eftirstríðsárunum voru ýmist herstjórnir eða lýðræðislega kosnar stjórnir við völd í Perú. Síðustu herstjórninni var steypt af stóli árið 1979. Mikill stjórnmálalegur óstöðugleiki var í Perú allan níunda og tíunda áratuginn, einkum vegna eiturlyfjaviðskipta og ágengni róttæku vinstri skæruliðahreyfinganna „The lightening path“ og „Túpac Amaru“. Á tíu ára löngum valdatíma Alberto Fujimoris forseta, allan tíunda áratug síðustu aldar, dró úr eiturlyfjaviðskiptum vegna mikils hagvaxtar. Stjórnunarstíll hans varð þó sífellt einræðislegri sem leiddi til þess að hann sagði af sér þrátt fyrir sigur í kosningum árið 2000. Mikilvægustu pólitísku baráttumálin í Perú í dag eru baráttan gegn eiturlyfjaviðskiptum, vaxandi atvinnuleysi, að byggja upp grunngerð landsins og bæta sambandið við nágrannalöndin.

Lífskjör

15

82 av 188

Perú er nummer 82 av 188 land på Human Development Index over menneskelig utvikling.

Hagkerfi og viðskipti

Aðalútflutningsvörur Perú eru fiskimjöl, bómull, sykur, kaffi og jarðefni. Perú flytur inn vélar, málma og ýmis konar matvöru. Miklar sveiflur voru í efnahag landsins á eftirstríðsárunum. Eftir mikla aukningu í jarðefnavinnslu og fiskveiðum á sjöunda áratug síðustu aldar tók við efnahagskreppa á níunda áratugnum og markaðsverð á útflutningsvörum landsins féll gríðarlega. Nokkuð dró úr verðbólgunni eftir umbætur í upphafi tíunda áratugarins, en mikil starfsemi fer enn fram utan hins formlega efnahagskerfis, þá sér í lagi eiturlyfjaviðskipti. Ferðaþjónustan hefur aukist með batnandi heilbrigðis- og öryggismálum, en er þó enn lítill hluti vergrar landsframleiðslu.

Kort

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Perú fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Mannfjöldi

Íbúar

34 352 719

Fólksfjöldi Perú

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

1 2 0

2,1

Fæðingartíðni Perú

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14

14

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Perú

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

4

13 749

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Perú

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

9 2 3 4 5
6 7 8 9 10

0,9

Hlutfall vannærðra íbúa Perú

Loftslag

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar 

1 6

1,73

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Perú

Heilsa

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

Engar tölur fáanlegar
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Perú

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

1 2 3 4 5
1 7 8 9 10

5,1

af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Perú

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

1 2 3 4 5
6 7 8 9 4

9,45

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Perú

Skólaganga

Hversu mörg ár er gert ráð fyrir að hvert barn gangi í skóla?

1 2 3 4 5
6 7 8 9 10
11 12 13

13,00

fjöldi ára sem gert er ráð fyrir að hvert barn gangi í skóla Perú

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku. 

4

0,380

GII-vísitala Perú

Jobb