[[suggestion]]
Rússland
 

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg

Moskva

Þjódernishópar

Rússar 80%, tatarar 4%, úkraínubúar 2%, aðrir/óskilgreint 14% (2002)

Tungumál

Rússneska, fjöldi minnihlutamála

Trúarbrögð

Rússneska-rétttrúnaðarkirkjan 15-20%, múslímar 10-15%, kristnir 2% aðrir/óskilgreint/ekkert 55-65% (2006)

Sjtórnarform

Sambandslýðveldi

Verg landsframleiðsla á hvern íbúa

36 485 PPP$

Aðrir áfangastaðir

Landafræði

Rússland er langstærsta land heims og teygir sig yfir ellefu tímabelti. Í sunnanverðu landinu eru sléttur, í norðri þéttur barrskógur og túndra meðfram norðurheimsskautsstrandlengjunni. Nokkrir fjallgarðar mynda náttúruleg landamæri að Suðaustur-Evrópu og Mið-Asíu. Í miðju landinu teygja Úralfjöll sig frá norðri til suðurs líkt og náttúruleg landamæri á milli Evrópu og Asíu. Nyrsti asíski hluti landsins er síberísku slétturnar og síberíska hálendið. Að norðurheimsskautsstrandlengjunni og sléttunum í suðri undanskildum er dæmigert innlandsloftslag í Rússlandi, með tiltölulega lítilli úrkomu, köldum vetrum og stuttum, heitum sumrum. Mikil umhverfisvandamál í landinu eru eftirmálar hinnar gífurlegu iðnvæðingar á tímum Sovétríkjanna og er meira en 75 prósent af ferskvatni landsins ekki nægilega gott sem drykkjarvatn. Mikill úrgangur frá þungaiðnaði og geislavirk mengun frá sjötta og sjöunda áratugnum hafa leitt til þess að ekki er búandi á stórum svæðum og er jarðvegseyðing og eftirlitslaust skógarhögg vandamál á nokkrum skógarsvæðum.

Saga

Flökkuhópar voru áberandi á því landsvæði sem í dag er Rússland, frá þeim tíma sem myndun ríkja í Mið-Asíu og við Svartahaf hófst og allt fram til elleftu aldar fyrir Krist. Kiev-ríkið var stofnað um það bil 800 árum eftir Krist þar sem Úkraína er í dag, það varð fljótt miðstöð verslunar og valdamikið á stórum svæðum í vesturhluta Rússlands. Eftir að Mongólar réðust inn í Kiev á 13. öld varð Moskva mikilvægt keisaradæmi. Næstu 500 ár stækkaði ríkið gífurlega og var árið 1721 endurnefnt hið rússneska heimsveldi Péturs hins mikla. Á þessum tíma var Rússland evrópskt stórveldi, en einræðislegir stjórnarhættir leiddu til fátæktar og vanþróunar í stærstum hluta landsins. Tilraunir til byltingar voru slegnar hart niður árin 1820 og 1905, en tókust árið 1917, þegar keisarafjölskyldan var ráðin af dögum. Eftir margra ára valdabaráttu varð Rússland hluti af hinum kommúnísku Sovétríkjum, sem voru stofnuð árið 1922. Sambandið (Sovétríkin) varð fyrir miklum áhrifum af einræðisstjórn Jósefs Stalíns (1924–1953) og miklum ósigri í seinni heimsstyrjöldinni. Sovétríkin leystust upp árið 1991, eftir margra ára óstöðugleika. Síðan hafa orðið miklar breytingar í Rússlandi sem er pólitískur, efnahagslegur og hernaðarlegur arftaki Sovétríkjanna.

Vistfræðileg fótspor

1 2 3 0

3,1

Hvis alle mennesker på Jorden skulle ha samme forbruk som en gjennomsnittlig innbygger i Rússland ville vi trenge 3,1 jordkloder.

Samfélag og stjórnmál

Rússland er sambandslýðveldi, forsetinn er kosinn til fjögurra ára í senn og útnefnir forsætisráðherrann og ríkisstjórnina. Duma, sem er stærri þingdeildin af tveimur, getur endurmetið ákvarðanir forsetans. Forsetinn er æðsti yfirmaður hersins og útnefnir fjölda háttsettra embættismanna. Héruð landsins hafa vissa sjálfsstjórn, en miðstýring hefur þó aukist í landinu undanfarin ár. Á tíunda áratugnum urðu miklar endurbætur á flestum stigum samfélagsins þó enn sé langt í land. Mörg þeirra vandamála sem ríktu í Sovétríkjunum eru enn til staðar í Rússlandi vegna mikils félags- og efnahagslegs mismunar á milli héraða, gífurlegrar spillingar, spennu á milli ólíkra kynþátta og óyfirstíganlega mikillar skriffinnsku. Landið er mikilvægur gerandi í alþjóðastjórnmálum og eitt af fimm fastaríkjum öryggisráðs SÞ.

Lífskjör

16

50 av 188

Rússland er nummer 50 av 188 land på Human Development Index over menneskelig utvikling.

Hagkerfi og viðskipti

Efnahagskerfi Rússlands er eitt af þeim stærstu í heimi og árið 1997 varð landið einn af meðlimum G8-hópsins svokallaða. Landið stendur enn þann dag í dag frammi fyrir miklum hindrunum sem það fékk í arf frá Sovétríkjunum, sérstaklega vegna mikils atvinnuleysis og einsleits gamals iðnaðar. Í Rússlandi er mikið af náttúruauðlindum, þar er meðal annars að finna stærstu gasauðlindir heims og heimsins stærsta samfellda skógarsvæði. Landið er leiðandi í olíuframleiðslu í heiminum, þar eru miklar jarðefnaauðlindir og mikill landbúnaður. Landið er háð litlu úrvali af útflutningsvörum sem gerir það sérlega berskjaldað fyrir breytingum á heimsmarkaði. Miklar sveiflur voru í rússnesku efnahagslífi á tíunda áratugnum, frá áætlunarbúskap til markaðsbúskapar. Umfangsmiklar umbætur gátu þó ekki forðað því að þúsundir fyrirtækja misstu mikil verðmæti og fátæktin jókst gífurlega á miðjum tíunda áratugnum. Eftir niðursveiflu á asískum mörkuðum varð efnahagskreppa í landinu árið 1998, hún gekk þó fljótt yfir og næstu ár þar á eftir einkenndust af hagvexti. Þökk sé stórum gjaldeyrisforða Rússlands tókst landinu að komast nær ósnert í gegnum fyrri hluta heimskreppunnar árið 2008, en stríðið við Georgíu og mikil verðlækkun olíu varð til þess að rúblan, rússneski gjaldmiðillinn, féll í gildi.  Árið 2009 drógst verg landsframleiðsla saman um 7.1 prósent.

Kort

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Rússland fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Mannfjöldi

Íbúar

144 444 359

Fólksfjöldi Rússland

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

1 4

1,5

Fæðingartíðni Rússland

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5

5

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Rússland

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

10

36 485

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Rússland

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

Engar tölur fáanlegar
Hlutfall vannærðra íbúa Rússland

Loftslag

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar 

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 1

11,23

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Rússland

Heilsa

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

Engar tölur fáanlegar
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Rússland

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

1 2 3 4 5
6 7 6 9 10

7,6

af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Rússland

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

1 2 3 4 5
6 7 8 9 10

9,99

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Rússland

Skólaganga

Hversu mörg ár er gert ráð fyrir að hvert barn gangi í skóla?

1 2 3 4 5
6 7 8 9 10
11 12 13 14

13,69

fjöldi ára sem gert er ráð fyrir að hvert barn gangi í skóla Rússland

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku. 

2

0,203

GII-vísitala Rússland

Jobb