Átök
Hér finnur þú lýsingu á flestum stórum átökum sem eiga ser stað í heiminum í dag, að auki eru hér upplýsingar um hvar SÞ eru með friðargæslusveitir. Þú getur lesið um bakgrunn ólíkra stríða, hve lengi þau hafa varað og hvað SÞ gera til að leysa þau.
Veldu átök í valmyndinni hér til vinstri með því að smella á punktana á kortinu.
Afganistan
Í gegnum söguna hafa mörg stríð verið háð í Afganistan. Í dag er landinu í fyrsta sinn stjórnað af kjörnum leiðtoga í tilraun til að lýðræðisvæða landið. Það þarf þó að sigrast á mörgum hindrunum, eigi lýðræðið að halda velli, þróast og festa sig í sessi.
Lesa meira
Al-Qaida
Hryðjuverkahópurinn al-Qaida er orðinn áberandi tákn herskárra múslíma í mörgum löndum. Hópurinn hefur það að markmiði að koma á trúarlegri stjórn í hinum múslímska heimi. Þetta hefur leitt til langvinnra og blóðugra átaka við eina stórveldi heims Bandaríkin.
Lesa meira
Angóla
Í Angóla var borgarastyrjöld í yfir þrjátíu ár. Friðarsamkomulagið sem stríðandi aðilar komu sér saman um árið 2002 heldur enn. En íbúar hins olíuríka landsvæðis Cabinda berjast en fyrir sjálfstæði sínu.
Lesa meira
Austur-Kongó
Hin vopnuðu átök í Austur-Kongó hafa verið kölluð bæði fyrsta heimsstyrjöld Afríku og gleymda stríðið. Átökin hafa fengið takmarkaða fjölmiðlaathygli þrátt fyrir þátttöku margra afrískra landa í þeim.
Lesa meira
Darfúr (Súdan)
Ástandið í Darfúr hefur þróast hratt upp í það að vera samkvæmt SÞ verstu hörmungar sem gengið hafa yfir fólk í heiminum.
Lesa meira
Eþíópía og Erítrea
Ósamkomulagið um landamærin á milli Eþíópíu og Erítreu kostuðu 80.000 manns lífið á árunum 1998 til 2000 og ekki er enn búið að leysa deiluna. Þetta læsta ástand er vegna þess að bæði löndin gera kröfu um lítið fjallasvæði.
Lesa meira
Fílabeinsströndin
Þar til í lok níunda áratugarins var Fílabeinsströndin eitt af ríkustu og best reknu löndum Afríku. Það hefur því miður liðið undir lok.
Lesa meira
Filippseyjar
Á syðri hluta Filippseyja berst herinn bæði gegn múslimskum og kommúnískum uppreisnarhópum. Átökin hafa varað í 30 ár og lítil von er á lausn mála.
Lesa meira
Georgía
Íbúar bæði Suður-Ossetíu og Abkhazíu vilja fá sjálfstæði frá Georgíu, en mæta litlum skilningi frá georgískum stjórnvöldum.
Lesa meira
Gólanhæðir (Sýrland og Ísrael).
Ísrael hertók Gólanhæðir sem tilheyrður Sýrlandi, árið 1967 og hefur frá árinu 1981 haldið því fram að þær séu ísraelskt yfirráðasvæði. Alþjóðasamfélagið krefst þess að Ísrael skili svæðinu tilbaka.
Lesa meira
Haítí
Haítí fékk sjálfstæði frá Frakklandi árið 1804. Í dag eru flutt fíkniefni í gegnum landið til Bandaríkjanna, þar eru ýmsir ofbeldishópar og mikil spilling.
Lesa meira
Írak
Bandaríkin réðust inn í Írak 20. mars 2003, án stuðnings frá SÞ. Bandaríkin vildu sanna það að Írak hefði yfir gjöreyðingarvopnum að ráða og að landið væri í samstarfi við hryðjuverkasamtökin al-Qaida.
Lesa meira
Kasmír
Kasmír er fallegt fjallasvæði sem liggur á landamærum Pakistans og Indlands. En á svæðið að tilheyra Pakistan, Indlandi eða vera sjálfstætt? Átök hafa varað þar frá árinu 1948.
Lesa meira
Kólumbía
Í Kólumbíu berst her ríkisstjórnarinnar gegn hinum vinstrisinnuðu skæruliðahópum FARC og ELN, sem stjórna stórum hluta landsins. Ríkisstjórnin nýtur stuðnings Bandaríkjanna og ólíkra herskárra hópa.
Lesa meira
Kósóvó
Í Kósóvó eru 93 prósent íbúanna Albanar og 5 prósent Serbar. Vandamálin í Kósovó hófust þegar svæðið reyndi að lýsa yfir sjálfstæði sínu árið 1991.
Lesa meira
Kúrdistan
Kúrdar eru fjórði stærsti þjóðflokkurinn í Mið-Austurlöndum en hafa aldrei átt eigið ríki. Svæðinu sem nefnist Kúrdistan („land kúrdanna“) er skipt á milli Íran, Írak og Tyrklands.
Lesa meira
Kýpur
Á Kýpur reyna Kýpur-Grikkir og Kýpur-Tyrkir að búa saman í sátt og samlyndi. Eyjunni hefur verið skipt í tvennt eftir svokallaðri grænni línu frá árinu 1974.
Lesa meira
Líbanon
Átökin á milli Palestínumanna og Ísraela fóru líka fram á líbanskri jörð og Líbanar hafa liðið fyrir vandamálin í nágrannalandinu.
Lesa meira
Líbería
Blóðugt borgarastríð geisaði í Líberíu allan tíunda áratug síðustu aldar sem rak 95% íbúa landsins á flótta. Undanfarin ár hefur lýðræðiSÞróun verið jákvæð og friðarumleitanir hafa skilað einhverjum árangri. Árið 2005 varð Líbería fyrsta land Afríku til að kjósa kvenkyns forseta, Ellen Johnson-Sirleaf.
Lesa meira
Mið-Afríkulýðveldið
Ástandið í Mið-Afríkulýðveldinu hefur verið óstöðugt frá því landið fékk sjálfstæði frá Frökkum árið 1960. Þar hefur eitt valdaránið tekið við af öðru. Átök hafa endurtekið blossað upp aftur og hafa átökin í Darfúr þar mikil áhrif á.
Lesa meira
Nepal
Það er ekki auðvelt að koma á lýðræði þegar konungurinn vill ekki halda sig til hlés og skæruliðar Maóista eru við völd á landsbyggðinni.
Lesa meira
Nígería
Í Nígeríu eru stöðug átök á milli múslíma og kristinna, auk þess sem olíuauðlindir landsins hafa skapað mikil umhverfis- og ofbeldisvandamál.
Lesa meira
Norður-Úganda
Í mörg ár horfðu Vesturlönd til forsetans Yoweri Museveni sem góðs fordæmis. Gagnrýnin gegn honum hefur þó aukist undanfarin ár. Hún er aðallega þess efnis að lýðræði sé ekki fylgt og að ríkisstjórnin nái ekki að stöðva uppreisnarhópinn Frelsisher Drottins (LRA).
Lesa meira
Palestína
Árið 1948 var Ísraelsríki stofnað á palestínsku landi, þrátt fyrir umfangsmikil mótmæli frá Palestínumönnum og Arabaheiminum. Árekstar á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna hafa síðan þá verið margir og blóðugir og enn er langt í land að friðsamleg og varanleg lausn finnist.
Lesa meira
Sómalía
Sómalía hefur átt í samfelldu borgarastríði frá árinu 1991. Landið er nú svo sundrað að það eina sem skilgreinir Sómalíu sem eina einingu eru landamærin í kringum landið. Stöðug átök á milli ólíkra ættbálka er aðalástæða hinna langvinnu átaka.
Lesa meira
Srí Lanka
Á Srí Lanka berjast Tamíltígrar fyrir sjálfstæðu ríki til handa Tamílum í landinu, það hafa þeir gert í meira en 20 ár. Í dag er sambandið á milli uppreisnarmanna og stjórnvalda verra en það hefur áður verið og hafa verið gerðar margar tilraunir til að koma á sáttaumleitunum á ný.
Lesa meira
Tsjad
Í Tsjad hefur geisað samfellt borgarastríð frá 1960. Átökin eru tilkomin vegna spennu á milli ólíkra ættbálka í landinu. Borgarastríðið í Darfúr hefur undanfarin ár haft mikil áhrif í landinu og það hefur að hluta dregist inn í þau átök.
Lesa meira
Tsjetsjenía
Þegar Sovétríkin leystust upp árið 1991, lýsti Tsjetsjenía yfir sjálfstæði sínu. Eftir það hafa bardagar geisað á milli rússneska hersins og tsjetsjeneskra uppreisnarhópa.
Lesa meira
Vestur-Sahara
Bæði SÞ og Alþjóðadómstóllinn í Haag hafa fordæmt hernám Marokkó á Vestur-Sahara, en Marokkó neitar að fara út úr landinu og hefur haft herlið þar í yfir þrjátíu ár.
Lesa meira

