Tölfræði Lönd Átök Gervihnattamyndir Samningar Þemu Myndbönd Um Globalis
Aðalsíða > Lönd > Bangladess

Bangladess

| Staðreyndir | Tölfræði | Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna |

Bangladess er eitt þéttbýlasta og fátækasta land heims. Stóru fljótin tvö Brahmaputra og Ganges renna í gegnum landið og frá þeim eru tíð flóð.

Landfræði og umhverfi

Bangladess er frjósamt land einkum vegna óshólmanna við fljótin Brahmaputra og Ganges. Vegna monsúnregnsins eru mikil flóð á sumrin sem hafa skapað stór vandamál í landinu undanfarin tíu ár. Þeir fátækustu verða verst úti þar sem þeir eru búsettir á óshólmasvæðinu, en árið 1991 létu 100.000 manns lífið vegna flóða. Talið er að tengsl séu á milli flóðanna og skógareyðingar í nágrannalöndunum Nepal og Bútan. Þrátt fyrir allt þetta vatn er vöntun á drykkjarvatni. Boraðir hafa verið brunnar til að veita vatni úr í staðinn fyrir óhreina vatnið á yfirborðinu, en undanfarin ár hefur það sýnt sig að brunnvatnið er oft mengað vegna steinefna sem innihalda arsenik.

 

Ef allt mannkyn myndi neyta til jafns eins og gerist að meðaltali í Bangladess, þá þyrftum við 0.3 eintök af plánetunni Jörð. Sjá mælistikuna fyrir vistfræðileg áhrif.

Saga

Indland var gert að breskri nýlendu árið 1947 og var landinu þá skipt í tvo hluta. Svæðið þar sem múslímar voru í meirihluta varð Pakistan á meðan hindúar fengu Indland. Bangladess varð hluti af Pakistan en átti lítið sameiginlegt með hinum hluta landsins. Meðal annars var móðurmál 98 prósent þjóðarinnar bengali. Þegar urdu var gert að opinberu tungumáli í Pakistan brutust út uppþot í svokölluðu Austur-Pakistan. Héraðið krafðist síðan sjálfstæðis frá svonefndu Vestur-Pakistan í mars árið 1971 og eftir blóðugt en stutt stríð, þar sem Indland tók afstöðu með Bangladess, fékk landið sjálfstæði. Stutt saga landsins hefur einkennst af valdaránum og morðum á sitjandi stjórnarherrum.

Samfélag og stjórnmál

Árið 1991 voru fyrstu lýðræðislegu kosningarnar haldnar. Stöðug átök voru á milli stærsta stjórnmálaflokks landsins Bangladesh Nationalist Party (BNP) og Awami League (AL). Stjórnmálalegi mismunurinn er lítill og stjórnaðist valdabaráttan að mestu leyti af persónulegum ástæðum. Dráp, hótanir og ofbeldi vegna stjórnmálaskoðana tíðkast víða. Það sama gildir um spillingu: landið er í dag spilltasta land heims samkvæmt lista Transparency International. Skortur á öryggi og geðþóttaákvarðanir yfirvalda gera hversdaginn óöruggan fyrir hina fátæku bengölsku borgara. Margir upplifa einnig lögregluna sem ógnun við persónulegt öryggi.

Hagkerfi og viðskipti

Bangladess er eitt af fátækustu ríkjum heims. Um það bil 2/3 hlutar landsins eru ræktað land og á um 80 prósentum þess eru ræktuð hrísgrjón. Júta og te hafa í gegnum tíðina verið meðal mikilvægustu útflutningsvaranna, en minnkandi eftirspurn og verðlækkun á heimsmarkaði leiðir til stöðugt lægri innkomu. Aðrar mikilvægar útflutningsvörur eru föt, te, leður og sjávarfang. Um það bil 2/3 íbúanna vinna við landbúnað en fáir aðilar eiga þær jarðir sem í boði eru. Kröftug flóð undanfarin tíu ár hafa aukið enn frekar á ójafnrétti á eignarhaldi en smábændur hafa neyðst til að selja jarðir sínar eftir síendurtekinn uppskerubrest. Jafnvel þó að landsframleiðsla aukist jafnt og þétt hefur ekki dregið verulega úr fátækt. Þvert á móti hefur bilið á milli ríkra og fátækra aukist. Jafnvel þó að þjóðin hafi verið svo til sjálfbær um mat eru enn um það bil 35 prósent íbúanna vannærðir.

Other country profiles



Flagg

Heimsálfa/svæði
Asía


Aðild/þátttaka
Alþjóðabankinn
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
G77
Mannréttindaráðið
Ríki utan hernaðarbandalaga
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
Samveldið
Vanþróuðustu löndin

Bangladess varð aðildarríki SÞ árið 1974.



Samantekt

Höfuðborg:
Dhaka

Þjóðernishópar:
Bangladessar 98%, aðrir 2% (1998)

Tungumál:
Bangalska, enska

Trúarbrögð:
Íslam 83%, hindúismi 16%, aðrir 1% (1998)

Login